Skoðunarferðir
Við hjá Novus Habitat getum sparað tíma og ráð með því að bjóða þér sérsniðna og persónulega skoðunarferð; faglega aðstoð við að finna réttu eignina fyrir þig og á réttu verði.
Frábrugðin öðrum fasteignasölum, sérhæfum við okkur í nýbyggingum; fallega hönnuðum fasteignum þar sem valið stendur á um og yfir 300 ólík fasteignaverkefni, við norður og suður Costa Blanca ströndina og suður til Costa Cálida. Allt frá íbúðum til glæsilegra einbýlishúsa með stórkostlegu sjávarútsýni svo eitthvað sé nefnt en úrvalið er fjölbreytt og gott.
Við höfum valið bestu möguleikana fyrir þig á völdum svæðum, við seljum ekki fasteignir sem hafa verið teknar yfir af bönkum og eru í slæmu ásigkomulagi eða endursölueignir í slæmu ástandi í ofbyggðum hverfum. Við kjósum að selja gæða vöru og tryggja að viðskiptavinir okkar séu ætíð ánægðir.
Besta leiðin til að kynnast þeim fasteignum sem standa þér til boða er að koma í heimsókn til okkar. Við sjáum um allt annað: Bókanir, sækjum þig á flugvöllinn ef þú vilt og við munum leiðbeina þér í skoðunarferð um eignirnar sem þú valdir að kynna þér. Við hefjum gjarnan ferðirnar á stuttum fundi með viðskiptavinum til að ganga úr skugga um að við vitum hvers þeir krefjast og tryggjum þannig að eingöngu sé farið í þær fasteignir sem í raun mæta þínum kröfum. Skoðunarferðir eru venjulega stuttar, við viljum því nota tímann vel og í það sem máli skiptir.