Nýr íbúðakjarni sem er einungis í 200m fjarlægð frá ströndinni í Punta Prima. Vinsælt svæði á milli Torrevieja og Orihuela Costa, með breiðu úrvali af alls kyns þjónustu í göngufjarlægð, s.s. matvöruverslanir, apótek, banka, verslanir, bari og veitingastaði. Hin frábæra verslunarmiðstöð Zenia Boulevard er í 5 mínútna akstursfjarlægð. Fjöldi tækifæra eru til útvistar og íþrótta, t.d. paddle- og tennisvellir, vatnasport á ströndinni, fjórir golfvellir í 10 mínútna akstursfjarlægð auk fjölda annarra.
Kjarninn býður upp á íbúðir sem eru með 2 eða 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum, fáanlegar á jarðhæð með einkagarði, miðhæð með yfirbyggðum svölum, eða þakíbúðir með eigin þakverönd. Allar íbúðirnar snúa í suður og eru með stofuna, borðstofuna og eldhúsið í einu opnu rými. Stórir gluggar í stofunni opnast út á verönd með útsýni yfir sameiginlegt útisvæði. Íbúðunum fylgja geymslur og bílastæði.
Sameiginlega svæðið er frábært en þar er sundlaug fyrir fullorðna og önnur fyrir börn, hituð laug, heitur pottur, leikvöllur, paddle- og tennisvöllur, líkamsræktartæki utandyra, sauna, kúluspilsvöllur, falleg græn svæði, hjólastæði og sameiginlegt bílastæði. Kjarninn er algjörlega lokaður með gönguleiðir innan kjarnans sem gerir það auðvelt að komast ferða sinna á sameiginlegu svæðunum.
Þessar upplýsingar sem hér eru gefnar eru fyrir hendi og þær eru ekki hluti af samningi. Tilboðinu er hægt að breyta eða afturkalla án fyrirvara. Verð er ekki með VSK.
Fylltu út formið hér að neðan
Gerast áskrifandi og þú færð nýjustu fréttirnar á undan öllum öðrum.
Sími +34 604 400 511
E-Mail info@novushabitat.es
Heimilisfang
Benimar Commercial center,
Benijofar, Spain
© 2024 Novus Habitat Real Estate · Legal athugið · Privacy · Vafrakökur(cookies) · Kort
Hönnun & CRM: Mediaelx
Fyrst af öllu, takk fyrir að hafa samband við okkur.
Við höfum móttekið beiðni þína um eignarviðmiðunina:GD-1070. Einn af lyfjum okkar mun hafa samband við þig eins fljótt og auðið er.
Fyrst af öllu, takk fyrir að hafa samband við okkur.
Við höfum fengið beiðni um skýrslu ef þú lækkar verð á eigninni með tilvísuninni: GD-1070
Í millitíðinni skaltu skoða þetta úrval af svipuðum eignum, sem þú gætir haft áhuga á