Nýr kjarni einbýlishúsa í La Herrada, sem er vinsælt íbúðahverfi í Los Montesinos á suðurhluta Costa Blanca. Bærinn er með mikilu úrvali af þjónustu; sem og matvöruverslanir, bankar, apótek, barir, veitingastaðir, heilsugæsla og skóli. Stutt er að fara til Ciudad Quesada, Guardamar del Segura, Torrevieja og Orihuela Costa. Á svæðinu er einnig úrval af alls kyns afþreyingu, eins og La Marquesa og La Finca golfvellirnir, vatnsrennibrautargarður, og Habaneras og Zenia Boulevard verslunarmiðstöðvarnar. Hinar stórkostlegu strendur Guardamar og Torrevieja eru eingöngu í um 10-15 mínútna akstursfjarlægð. Hrauðbrautin AP-7, CV-905 og N-332 vegirnir gera það að verkum að einfalt er að komast á milli staða og borga en flugvöllurinn í Alicante er í um 40 mínútna akstursfjarlægð.
Kjarninn býður upp á einbýlishús , með 3 svefnherbergjum og 3 baðherbergjum, byggð á 2 hæðum auk þakverandar. Jarðhæðin bý'ur upp á eldhús, borðstofu og stofu sem opnast út á verönd þar sem er yfirbyggð pergóla og sundlaugarsvæði. Á þessari hæð er einnig tvöfalt svefnherbergi og baðherbergi. Á efri hæð eru tvö hjónaherbergi með en-suite baðherbergi, og útfrá öðru þeirra er aðgangur á sér svalir/verönd. Þakveröndin er kjörin til að njóta útsýnisins og milds loftslagsins á Costa Blanca.
Kjarninn býður einnig upp á fjögur einbýlishús á einni hæð auk þakverandar með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum, byggð á 400-405m2 lóðum. Húsin eru með opnu skipulagi sem sameinar eldhús, stofu og borðstofu sem opnast út á yfirbyggða verönd og sundlaugarsvæðið. Hjónaherbergið opnast einnig út á verönd og er með sér baðherbergi og fataherbergi. Aukalega er hægt að fá stærri sundlaug ef komið er að kaupunum nægilega snemma.
Húsunum fylgja tengi fyrir loftkælingu, fullbúnir fataskápar, rafknúnar gardínur, öryggiskerfi, sundlaug, og fullgerður garður með gervigrasi og bílastæði.
Þessar upplýsingar sem hér eru gefnar eru fyrir hendi og þær eru ekki hluti af samningi. Tilboðinu er hægt að breyta eða afturkalla án fyrirvara. Verð er ekki með VSK.
Fylltu út formið hér að neðan
Gerast áskrifandi og þú færð nýjustu fréttirnar á undan öllum öðrum.
Sími +34 604 400 511
E-Mail info@novushabitat.es
Heimilisfang
Benimar Commercial center,
Benijofar, Spain
© 2024 Novus Habitat Real Estate · Legal athugið · Privacy · Vafrakökur(cookies) · Kort
Hönnun & CRM: Mediaelx
Fyrst af öllu, takk fyrir að hafa samband við okkur.
Við höfum móttekið beiðni þína um eignarviðmiðunina:MO-1115. Einn af lyfjum okkar mun hafa samband við þig eins fljótt og auðið er.
Fyrst af öllu, takk fyrir að hafa samband við okkur.
Við höfum fengið beiðni um skýrslu ef þú lækkar verð á eigninni með tilvísuninni: MO-1115
Í millitíðinni skaltu skoða þetta úrval af svipuðum eignum, sem þú gætir haft áhuga á