Nýr einbýlishúsakjarni í Hondón de las Nieves, þorp í Alicante héraði, nálægt borginni Elche. Þorpið er í dal sem er umkringt fjöllum, og er þekkt fyrir vínekrur, ólífu- og möndlurækt sem og furuskóga. Mikil fjölbreytni er í vöruúrvali innan þorpsins, en í bænum Aspe sem er í innan við 10 mínútna akstursfjarlægð er að finna enn frekara úrval. Elche í um 25 mínútna akstursfjarlægð og býður upp á mikla þjónustu og afþreyingu, s.s. verslunarmiðstöðvar, íþróttaleikvanga, innlenda og alþjóðlega skóla, heilsugæslu, spítala og lestarstöð. Kjarninn er vel staðsettur og er hægt að aka að fallegu ströndunum í Arenales del Sol, Santa Pola, og La Marina á um 35 mínútum. Kjarninn er einnig vel tengdur vegakerfinu og er auðvelt að aka Costa Blanca strandlengjuna og fara til Alicante, Guardamar del Segura, og Torrevieja en flugvöllurinn í Alicante er í um 30 mínútna fjarlægð.
Þessi litli kjarni býður upp á einbýlishús með 3 svefnherbergjum og 3 baðherbergjum, á 2 hæðum auk kjallara. Jarðhæðin er með opnu skipulagi og er stofan, borðstofan og eldhúsið í einu rými. Stórir gluggar í stofunni opnast út á verönd sem er með pergólu, grillsvæði og garði með sundlaug. Á hæðinni er einnig hjónaherbergi með sér baðherbergi, þá er gestasalerni einnig á hæðinni. Á annarri hæð eru 2 svefnherbergi og 2 baðherbergi innaf hvoru þeirra, rúmgóð verönd með útsýni yfir sundlaugina og garðinn. Kjallarinn er innangengdur og er þar að finna 90m2 rými, geymslu og enska verönd. Þetta stóra rými getur verið notað sem bíósalur, vínkjallari, líkamsrækt eða hvað sem er.
Kjarninn hefur verið hannaður með sjálfbærni í huga, og með sólarsellum sem minnkar orkunotkun. Auk þess er loftræsting sem fylgir húsunum og loftkæling sem bæði hitar og kælir. Húsunum fylgja einnig fullbúnir fataskápar, grillsvæði á veröndinni, einkagarður og sundlaug, auk bílastæðis með tengi til að hlaða rafbíla. Aukalega er hægt að gera breytingar á húsunum og garðinum, ef vilji er fyrir því.
Þessar upplýsingar sem hér eru gefnar eru fyrir hendi og þær eru ekki hluti af samningi. Tilboðinu er hægt að breyta eða afturkalla án fyrirvara. Verð er ekki með VSK.
Fylltu út formið hér að neðan
Gerast áskrifandi og þú færð nýjustu fréttirnar á undan öllum öðrum.
Sími +34 604 400 511
E-Mail info@novushabitat.es
Heimilisfang
Benimar Commercial center,
Benijofar, Spain
© 2024 Novus Habitat Real Estate · Legal athugið · Privacy · Vafrakökur(cookies) · Kort
Hönnun & CRM: Mediaelx
Fyrst af öllu, takk fyrir að hafa samband við okkur.
Við höfum móttekið beiðni þína um eignarviðmiðunina:UR-1061. Einn af lyfjum okkar mun hafa samband við þig eins fljótt og auðið er.
Fyrst af öllu, takk fyrir að hafa samband við okkur.
Við höfum fengið beiðni um skýrslu ef þú lækkar verð á eigninni með tilvísuninni: UR-1061
Í millitíðinni skaltu skoða þetta úrval af svipuðum eignum, sem þú gætir haft áhuga á