Hér er um að ræða einstaka eign sem sameinar rými, nútímaleg þægindi og einstakt útisvæði á frábærum stað á Costa Blanca. Húsið er alls 240m² á tveimur hæðum og stendur á 329m² einkalóð með fallegum garði, einkasundlaug og glæsilegri 54m² þakverönd þar sem hægt er að njóta spænsku sólarinnar allan ársins hring.
Á aðalhæðinni, sem er um 120m², tekur á móti þér björt og rúmgóð forstofa með góðu skápaplássi ásamt þvottahúsi og auka ísskáp. Þar eru tvö rúmgóð svefnherbergi, þar af glæsileg hjónasvíta með sér baðherbergi og innangengnum fataskáp. Einnig er gestasalerni á gangi. Opið og einstaklega bjart eldhús og stofa mynda fallegt alrými með beinu útgengi út á verönd og sundlaugarsvæðið – fullkomið fyrir bæði daglegt líf og gestamóttökur.
Neðri hæðin býður upp á um 120m² af fjölbreyttu rými með tveimur stórum herbergjum, rúmgóðu sjónvarpsholi og glæsilegu bar- og leiksvæði þar sem meðal annars er poolborð, píla og góð aðstaða til samveru og skemmtunar. Þar eru einnig tvær geymslur sem bæta við þægindi eignarinnar.
Þetta er eign fyrir þá sem vilja njóta lífsins á Spáni með stíl, næði og öllum helstu þægindum í göngufæri. Benijófar er einstaklega vinsæll og heillandi bær með fjölbreyttri þjónustu, veitingastöðum, kaffihúsum og stuttri fjarlægð í golfvelli og fallegar strendur Costa Blanca.
Gerast áskrifandi og þú færð nýjustu fréttirnar á undan öllum öðrum.
Sími
744 78 07 28
E-Mail info@novushabitat.es
Heimilisfang
Benimar Commercial center,
Benijofar, Spain
© 2026 Novus Habitat Real Estate · Legal athugið · Privacy · Vafrakökur(cookies) · Kort
Hönnun & CRM: Mediaelx
Fyrst af öllu, takk fyrir að hafa samband við okkur.
Við höfum móttekið beiðni þína um eignarviðmiðunina:rs-196. Einn af lyfjum okkar mun hafa samband við þig eins fljótt og auðið er.
Fyrst af öllu, takk fyrir að hafa samband við okkur.
Við höfum fengið beiðni um skýrslu ef þú lækkar verð á eigninni með tilvísuninni: rs-196
Í millitíðinni skaltu skoða þetta úrval af svipuðum eignum, sem þú gætir haft áhuga á