Nýr íbúðakjarni í Pilar de la Horadada á Costa Blanca. Þessi spænski bær býður upp á mikið úrval af þjónustu, s.s. matvöruversalnir, bari, veitingastaði, skóla og heilsugæslu, auk íþrótta leikvangs sem er með innisundlaug, fótboltavöllum, tennis- og paddlevöllum og líkamsrækt. Dos Mares og Zenia Boulevard verslunarmiðstöðvarnar eru í um 15 mínútna akstursfjarlægð auk mikils úrvals af alls kyns afþreyingu. Fyrir útivistarfólk eru frábæru strendur Las Higuericas í um 3 km fjarlægð frá kjarnanum en þangað er hægt að hjóla á um 15 mínútum. Einnig er fjöldi göngu- og hjólaleiða, tækifæri til að stunda vatnasport af ýmsu tagi og fjöldinn allur af golfvöllum í um 20 mínútna fjarlægð.
Kjarninn býður upp á íbúðir með 2 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum, fáanlegar í mismunandi útgáfum; jarðhæðir með einkagarði og verönd, og efri hæðir með þakverönd. Íbúðirnar eru með opnu skipulagi og opnast stofan út á verönd. Hjónaherbergin í íbúðunum eru með baðherbergi innaf. Hægt er að velja innréttingar að eigin smekk en þeim fylgja öll eldhústæki, tengi fyrir loftkælingu, tengi fyrir rafstýrðar gluggalokanir, þvottaaðstaða með vaski og tengi fyrir þvottavél auk bílastæðis.
Sameiginlega svæðið er lokað sem tryggir öryggi og næði íbúa. Stór sameiginleg sundlaug er í kjarnanum, og fallegur garður með innlendum plöntum sem þýðir minni vökvun og vatnssparnaður.
Þessar upplýsingar sem hér eru gefnar eru fyrir hendi og þær eru ekki hluti af samningi. Tilboðinu er hægt að breyta eða afturkalla án fyrirvara. Verð er ekki með VSK.
Fylltu út formið hér að neðan
Gerast áskrifandi og þú færð nýjustu fréttirnar á undan öllum öðrum.
Sími +34 604 400 511
E-Mail info@novushabitat.es
Heimilisfang
Benimar Commercial center,
Benijofar, Spain
© 2024 Novus Habitat Real Estate · Legal athugið · Privacy · Vafrakökur(cookies) · Kort
Hönnun & CRM: Mediaelx
Fyrst af öllu, takk fyrir að hafa samband við okkur.
Við höfum móttekið beiðni þína um eignarviðmiðunina:PL-948-TF. Einn af lyfjum okkar mun hafa samband við þig eins fljótt og auðið er.
Fyrst af öllu, takk fyrir að hafa samband við okkur.
Við höfum fengið beiðni um skýrslu ef þú lækkar verð á eigninni með tilvísuninni: PL-948-TF
Í millitíðinni skaltu skoða þetta úrval af svipuðum eignum, sem þú gætir haft áhuga á