Mynda gallerí
Upplýsingar um svæði
Orihuela Costa er breið strandlengja á Suður Costa Blanca með ótrúlegu útsýni, notalegum víkum, ströndum með hvítum sandi og fögrum Miðjarðarhafsskógi.
Á síðustu árum hefur verið mikil uppbygging í ferðaþjónustu á Orihuela Costa sem býr því yfir fullkomnum innviðum og þjónustu. Nokkrar verslunarmiðstöðvar eru á svæðinu, þar á meðal ein sú stærsta á Spáni. Þar er einnig að finna eina 5 golfvelli, sjúkrahús, og nokkra alþjóðlega skóla. Í stuttu máli, fullkominn staður fyrir þá sem velta fyrir sér kaupum við ströndina. Framboðið er mikið og verðið afar samkeppnishæft. Orihuela Costa skiptist upp í nokkrar íbúðabyggðir, hvort sem er nær eða fjær ströndu eða í nálægð golfvallar.